Erlent

Misheppnuð ránstilraun í Nykøbing

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Tveir ræningjar hurfu á brott tómhentir eftir að hafa reynt að ræna peningaflutningabíl í danska bænum Nykøbing á Sjálandi.

Ræningjarnir hlupu að bílnum þar sem hann var að leggja af stað frá stórmarkaði og voru vopnaðir skammbyssu og ævafornum herriffli. Þeir reyndu að hrifsa til sín peningatösku úr bílnum en hún var útbúin með málningarsprengju sem sprakk og dreifði eldrauðri málningu í allar áttir auk þess sem hávært öryggiskerfi bílsins fór í gang. Ræningjarnir forðuðu sér því af vettvangi án þess að næla í fenginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×