Eru að fá sig fullsadda af ofbeldi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. mars 2009 08:06 Lögregla og sjúkraflutningamenn á vettvangi í gær. MYND/Politiken/Thomas Borberg
Einn er látinn og fjórir særðir eftir skotbardaga á Amager í gærkvöldi og eru Kaupmannahafnarbúar að fá sig fullsadda af skálmöldinni. Eins og oft áður sló þarna í brýnu milli glæpahópa en róstursamt hefur verið í höfuðborginni og nágrenni hennar undanfarna mánuði. Hefur þar mest borið á illdeilum vélhjólasamtakanna Vítisengla og glæpahópa innflytjenda sem deilt hafa um markaðssvæði vegna fíkniefnasölu. Skotbardaginn í gær varð á kaffihúsinu Vaaren sem er þekktur samkomustaður félaga í AK81 en það eru stuðningssamtök Vítisengla og eins konar uppeldisstöð væntanlegra engla. Á föstudaginn var maður skotinn til bana í Nørrebro-hverfinu og annar er slasaður eftir skotárás á laugardag svo segja má að skammt sé milli stórra verka og illra í Kaupmannahöfn þessa dagana. Íbúar Nørrebro hafa nú tekið höndum saman undir kjörorðinu „Væk med vold og våben", eða burt með ofbeldi og vopn, og bundið það fastmælum að koma á sérstöku samstarfi við lögreglu og standa hálfgerða vakt í hverfinu með það fyrir augum að kæfa ofbeldisverkin í fæðingu. Kona sem búið hefur í hverfinu í aldarfjórðung segir að þetta gangi hreinlega ekki lengur og nú sé sannarlega tímabært að bera klæði á vopnin. Nørrebro sé heimili en ekki vígvöllur.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira