Vígasveit talibana myrti tuttugu 11. febrúar 2009 18:57 MYND/AP
Vígasveit talibana myrti tuttugu manns í sjálfsmorðsárás í Kabúl höfuðborg Afganistans í dag. Það þykja ótíðindi að ekki skuli hægt að verja höfuðborgina. Átta talibanar íklæddir sprengjuvestum réðust á dómsmálaráðuneytið í Kabúl og fangelsismálastofnunina sem er við hlið þess. Árásarmennirnir voru vopnaðir hríðskotarifflum og skutu alla sem á vegi þeirra urðu. Fimm réðust inn í dómsmálaráðuneytið og þrír á fangelsismálastofnunina. Afganskir stjórnarhermenn komu fljótlega á vettvang og þustu á eftir þeim fimm sem komust inn í ráðuneytið. Þar varð harður skotbardagi sem lauk með því að allir árásarmennirnir voru skotnir til bana. Enginn þeirra notaði vesti sitt til þess að sprengja sig í loft upp. Það gerðu hinsvegar þeir þrír sem réðust á fangelsismálastofnunina. Alls myrtu þeir tuttugu manns og særðu fimmtíu og sjö. Talibanar eiga flest víghreiður sín í suður- og austurhluta landsins. Þessi árás sýnir hinsvegar að það eru fáir öruggir staðir í landinu. Talibönum hefur verið að vaxa fiskur um hrygg undanfarin misseri og Barack Obama forseti Bandaríkjanna hefur ákveðið að fjölga hermönnum í Afganistan. Það verður gert jafnframt því að fækka verður í herliðinu í Írak.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira