Erlent

Kveikti í konu fyrir framan börnin hennar

Karlmaður í Queens hverfinu í New York bankaði upp á hjá fyrrverandi kærustu sinni í dag. Þegar hún kom til dyra kastaði hann bensíni á hana og kveikti í henni. Börnin hennar, sem eru eins og hálfs árs og þriggja ára gömul sáu móður sína brenna.

Konan komst út úr íbúðinni eftir að maðurinn kveikti í henni en hann reyndi að koma í veg fyrir það og hlaut því brunasár sjálfur. Konan komst upp á þak þar sem henni tókst að slökkva eldinn. Hún er illa brunninn en ekki talinn í lífshættu.

Maðurinn var handtekinn samstundis og er í haldi lögreglunnar í New York. Ekki er ljóst hvað manninum gekk til með athæfi sínu.

Börnin fengu snert af reykeitrun en ekki í neinni hættu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×