Erlent

Telja sig hafa handtekið hrottalegasta nauðgara Bretlands

Lögreglan í Lundúnum hefur handtekið rúmlega fimmtugan mann sem er grunaður um að vera einhver eftirlýstasti kynferðisglæpamaður Bretlands. Maðurinn, sem er kallaður „Næturhrellirinn" (e. Nightstalker) í breskum fjölmiðlum, á að baki um 100 árásir á eldri borgara í suður-London. Árásirnar ná aftur til 1990.

Maðurinn hefur ráðist með kynferðislegum hætti á eldri borgara allt frá 68 ára gömlum upp í 93 ára. Hann hefur meðal annars nauðgað fórnalömbum sínum. Bæði konum og körlum.

Maðurinn sem er í haldi lögreglunnar er 52 ára gamall. Málið hefur vakið gríðarlega mikla athygli í breskum fjölmiðlum en fyrr í þessum mánuði upplýsti lögreglan almenning um að lögreglan hefði náð um 2000 DNA sýnum á þeim tólf árum sem málið hefur verið í rannsókn. Kostnaðurinn vegna þessa nemur 102 þúsund pundum.

29 manna hópur lögreglumanna rannsakar málið.

Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um málið samkvæmt The Daily Telegraph.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×