Innlent

Ræningja enn leitað

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn tveggja manna, líklega um tvitugt, sem frömdu vopnað rán í verslun 10-11 í Skipholti í Reykjavík laust fyrir hádegi í gær. Þeir ógnuðu tveimur afgreiðslumönnum með hnífum, stungu á sig verðmætum og komust undan á bláum smábíl.

Vitað er að þeir óku í veg fyrir vínrauðan fólksbíl á gatnamótum Háteigsvegar og Skipholts og óskar lögregla eftir að hafa tal af ökumanni hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×