Innlent

Slökkvilið kallað í Herjólfsdal

Slökkviliðið í Vestmannaeyjum var kallað inn í Herjólfsdal undir morgun til að slökkva eld, sem hafði læst sig í mannvirki við stórt útigrill þar. Yfirgefin tjöld höfðu verið borin þar að og kveikt í þeim.

Gæslumenn í dalnum voru búnir að tæma 40 vatnsslökkvitæki á brennandi tjöld í nótt, þegar kalla þurfti á slökkviliðið. Brögð eru að því að þjóðhátíðargestir skilji tjöld sín og viðlegubúnað eftir þegar þeir yfirgefa dalinn, eða kveiki sjálfir í.

Engan sakaði í þessum eldum og var að öðru leyti rólegt í Vestmannaeyjum í nótt, þótt þar bíði enn fjöldi fólks eftir því að komast til lands með flugi og Herjólfi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×