Hætt við að gefa út sakamálasögu af ótta við múslima Óli Tynes skrifar 5. október 2009 14:18
Bókaforlag í Þýskalandi hefur hætt við að gefa út sakamálasögu um heiðursmorð, þar sem hún gæti reitt múslima til reiði.Heiðursmorð eru tíð í sumum múslimaríkjum. Og sumir múslimar sem búa á Vesturlöndum hafa tekið þenna sið með sér þangað. Fjölmörg slík morð hafa til dæmis verið framin á Norðurlöndum.Fornarlömbin eru yfirleitt ungar konur sem lenda í ástarsamböndum sem eru fjölskyldunni ekki að skapi, eða vilja ekki giftast manni sem fjölskyldan velur fyrir þær. Þá er það talin skylda föður eða bræðra að myrða hana.Slík morð hafa einnig verið framin í Þýskalandi og rithöfundurinn Gabriele Brinkman hefur skrifað um þetta sakamálasögu.Neitaði að breyta handritinuDroste forlagið var hinsvegar á báðum áttum þegar handritið barst. Það fékk sérfræðing í islamstrú til þess að lesa það yfir. Sérfræðingurinn komst að þeirri niðurstöðu að bókin gæti angrað múslima.Brinkmann var þá beðin um að yfirfara og milda orðalag sitt. Því neitaði hún. Þá var ákveðið að hætta við útgáfu bókarinnar.Í viðtali við netútgáfu Der Spiegel vísaði útgefandinn Felix Droste til öryggis síns og fjölskyldu sinnar.Hann sagði að frá því fárið varð út af dönsku myndunum af Múhameð spámanni sé öllum mönnum ljóst að menn leggi sig í lífshættu með því að móðga múslima með orðum eða myndum.Angela Merkel reiðÁrið 2006 kaus þýska óperan að taka óperuna Idomeneo eftir Mozart af dagskrá. Ástæðan var sú að í verkinu var sena þar sem sjá mátti afskorin höfuð Múhameðs, Jesús, Búdda og fleiri merkra manna.Óttast var að það myndi vekja reiði múslima. Ákvörðunin um að taka óperuna af dagsrká vakti hinsvegar reiði Angelu Merkel, kanslara sem kallaði hana sjálfsritskoðun óttans.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Sjá meira