Erlent

Norður-Kóreumenn hóta öllu illu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Hersýning í Pyongyang, algeng sjón þessa dagana.
Hersýning í Pyongyang, algeng sjón þessa dagana.

Norður-Kóreumenn hóta að ráðast á nágranna sína í suðri eftir að þeir síðarnefndu ákváðu að taka þátt í því með Bandaríkjamönnum að leita í skipum á leið til Norður-Kóreu sem grunur leikur á að flytji efni eða hluti í kjarnavopn til landsins. Herforingjastjórnin í Pyongyang hefur virkjað aflagða plútóníumverksmiðju og skotið fjölda eldflauga í allar áttir í tilraunaskyni undanfarna daga. Þá eru Norður-Kóreumenn æfir yfir fordæmingu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og nýhertum viðskiptaþvingunum vegna skotæfinganna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×