Erlent

Jarðskjálfti á Taiwan

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Jarðskjálfti að styrkleika 5,8 stig á Richter skók suðurhluta Taiwan á ellefta tímanum í gærkvöldi. Ekki hafa borist upplýsingar um slysfarir eða skemmdir á mannvirkjum, en upptök skjálftans voru á 78 kílómetra dýpi á vesturströnd landsins. Jarðskjálftar eru tíðir í Taiwan vegna legu landsins á flekamótum í Kyrrahafinu. Árið 1999 varð þar skjálfti sem kostaði 2.400 manns lífið og skemmdi eða eyðilagði 50 þúsund byggingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×