Dr. Dauði lést í Kaíró 1992 Atli Steinn Guðmundsson skrifar 5. febrúar 2009 07:26 Aribert Heim.
Þýski stríðsglæpamaðurinn Aribert Heim lést í egypsku borginni Kaíró árið 1992, samkvæmt nýrri rannsókn. Þýska útvarpsstöðin ZDF greindi frá þessu í gær og sagði ítarlegar rannsóknir hafa leitt í ljós að maður að nafni Tarek Farid Hussein hafi í raun verið Heim. Efraim Zuroff hjá Simon Wiesenthal-stofnuninni segir þetta harmafregn, reynist hún sönn, og kveður það skelfileg vonbrigði að Aribert Heim hafi komist hjá refsingu. Zuroff er einn af helstu eftirleitarmönnum stríðsglæpamanna úr röðum nasista og segist hann í viðtali við CNN munu rannsaka öll gögn málsins í þaula. Hann lýsir Heim sem einum hættulegasta stríðsglæpamanni nasista fyrr og síðar. Wiesenthal-stofnunin hafi verið að því komin að hækka verðlaun fyrir upplýsingar er leitt gætu til handtöku hans úr rúmum 300.000 evrum í eina milljón evra þegar fregnir bárust af andlátinu. Heim starfaði sem læknir í Mauthausen-útrýmingarbúðunum í Austurríki og gekk þar undir hinu huggulega viðurnefni dr. Dauði en hann stjórnaði mjög vafasömum tilraunum á föngunum. Hann var upphaflega hreinsaður af ásökunum um stríðsglæpi en árið 1962 ákváðu þýsk yfirvöld að fyrirskipa handtöku hans.
Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Innlent Fleiri fréttir Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sjá meira