Hvatti Jackson til að snúa aftur í kirkju Votta Jehóva 27. júní 2009 18:44
Einn helsti andlegi ráðgjafi Michaels Jacksons segir að hann hafi verið blíður maður en hrelld sál. Óli Tynes ræddi við gyðingaprestinn Shmuley Boteachk og spurði hann meðal annars af hverju Jackson hafi reynt að verða hvítur. Shmuley Boteach er einn þekktasti gyðingaprestur Bandaríkjanna, höfundur tuttugu metsölubóka og stjórnandi bæði útvarps og sjónvarpsþátta. Hans eigin trú hafði ekkert með samband þeirra Jacksons að gera, þvert á móti hvatti hann söngvarann til þess að snúa aftur í kirkju Votta Jehóva enda Jackson mjög guðhræddur. Samband þeirra Shmuels og Jacksons rofnaði árið 2003 þegar Shmuel fann að söngvarinn var að fjarlægjast hann og vildi frekar hlusta á áhangendur sína. Shmuel segist muni hugsa til Jacksons með ást söknuði og sektarkennd það sem hann eigi eftir ólifað.
Tengdar fréttir Ellen Kristjáns: Mér fannst hann æðislegur „Hann var bara einstakur skemmtikraftur af líf og sál en höndlaði ekki þennan frægðarsirkus," segir Ellen Kristjánsdóttir söngkona aðspurð um Michael Jackson. „Mér fannst hann æðislegur, sérstaklega þegar hann var ungur. Uppáhaldslagið mitt er I´ll be there. Elstu stelpurnar mínar og bræðrabörn fannst hann ótrúlega frábær og á tímabili Thrillers var sungið og dansað alla daga og plaköt um alla veggi." „Sorglegt hvernig fór fyrir Michael í lokin en minninginn lifir áfram um frábæran listamann," segir Ellen að lokum. 27. júní 2009 14:44 Hafdís Huld: Samsæriskenningar komnar á kreik „Það eru allir fjölmiðlar hér fullir af fréttum að Michael Jackson, sérstakir þættir á öllum stöðvum með lögunum hans og allskonar samsæriskenningar strax komnar á kreik," svarar Hafdís Huld Þrastardóttir söngkona sem býr í London aðspurð um viðbrögðin við fráfalli Michael Jackson í Bretlandi. „Það er verið að líkja umræðunni í fjölmiðlum við það sem gerðist þegar Elvis og Marilyn Monroe fellu frá," bætir hún við og segir: „Sama hvað fólki fannst um það hvernig Michael lifði sínu persónulega lífi held ég að enginn geti neitað því að maðurinn var alger snillingur þegar kom að tónlist og sviðsframkomu . Lögin hans hafa elst einstaklega vel og það er eiginlega ótrúlegt að hugsa til þess þegar maður hlustar á til dæmis Thriller að þessar upptökur séu meira en 25 ára gamlar." „Uppáhalds Jackson platan mín hefur samt alltaf verið jólaplatan með Jackson five. Hún er spiluð heima hjá mér á hverjum jólum," segir Hafdís áður en kvatt er. 27. júní 2009 16:30 Krufning á Jackson skilaði engu Engar vísbendingar fundust um dánarorsök þegar Michael Jackson var krufinn í gær. Dánardómstjóri segir að frekari rannsóknir hafi verið fyrirskipaðar, meðal annars til þess að komast að því hvaða lyf poppstjarnan hafi tekið fyrir dauða sinn. 27. júní 2009 09:51 Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats Innlent Fleiri fréttir Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Sjá meira
Ellen Kristjáns: Mér fannst hann æðislegur „Hann var bara einstakur skemmtikraftur af líf og sál en höndlaði ekki þennan frægðarsirkus," segir Ellen Kristjánsdóttir söngkona aðspurð um Michael Jackson. „Mér fannst hann æðislegur, sérstaklega þegar hann var ungur. Uppáhaldslagið mitt er I´ll be there. Elstu stelpurnar mínar og bræðrabörn fannst hann ótrúlega frábær og á tímabili Thrillers var sungið og dansað alla daga og plaköt um alla veggi." „Sorglegt hvernig fór fyrir Michael í lokin en minninginn lifir áfram um frábæran listamann," segir Ellen að lokum. 27. júní 2009 14:44
Hafdís Huld: Samsæriskenningar komnar á kreik „Það eru allir fjölmiðlar hér fullir af fréttum að Michael Jackson, sérstakir þættir á öllum stöðvum með lögunum hans og allskonar samsæriskenningar strax komnar á kreik," svarar Hafdís Huld Þrastardóttir söngkona sem býr í London aðspurð um viðbrögðin við fráfalli Michael Jackson í Bretlandi. „Það er verið að líkja umræðunni í fjölmiðlum við það sem gerðist þegar Elvis og Marilyn Monroe fellu frá," bætir hún við og segir: „Sama hvað fólki fannst um það hvernig Michael lifði sínu persónulega lífi held ég að enginn geti neitað því að maðurinn var alger snillingur þegar kom að tónlist og sviðsframkomu . Lögin hans hafa elst einstaklega vel og það er eiginlega ótrúlegt að hugsa til þess þegar maður hlustar á til dæmis Thriller að þessar upptökur séu meira en 25 ára gamlar." „Uppáhalds Jackson platan mín hefur samt alltaf verið jólaplatan með Jackson five. Hún er spiluð heima hjá mér á hverjum jólum," segir Hafdís áður en kvatt er. 27. júní 2009 16:30
Krufning á Jackson skilaði engu Engar vísbendingar fundust um dánarorsök þegar Michael Jackson var krufinn í gær. Dánardómstjóri segir að frekari rannsóknir hafi verið fyrirskipaðar, meðal annars til þess að komast að því hvaða lyf poppstjarnan hafi tekið fyrir dauða sinn. 27. júní 2009 09:51