Tilkynningum um dýraníð fjölgar í Danmörku 7. febrúar 2009 20:54 Naggrísir.
Sífellt fleiri tilkynningar berast um vanrækslu eða ofbeldi gagnvart dýrum í Danmörku. Dönsku dýraverndasamtökin, Dyrenes Beskyttelse, segjast fá um 3 þúsund tilkynningar á ári og þeim hafi fjölgað um 31% á milli tveggja síðustu ára. Tilkynningarnar sem berast eru ólíkar, sumar um sakleysisleg mál en aðrar um mjög gróft ofbeldi. Talsmenn Dyrenes Beskyttelse segja að í einstaka tilfellum sé um að ræða mjög einbeittan vilja til ofbeldisverknaðar. Það á til dæmis við um eitt dæmið þegar að þrír drengir kveiktu í naggrís. „Fólk veit í mörgum tilfellum ekkert um það hvernig á að fara með dýrin. Hugsunarleysi er líka vanræksla. Það er ótrúlega mikilvægt að þeir sem hafa dýrin á sölu passi upp á að segja kaupendunum hvernig á að hugsa um þau. Ef þú ert mest fyrir að kúra heima hjá þér áttu til dæmis ekkert að vera að fá þér hund sem þarf þriggja klukkustunda hreyfingu á dag," segir Gitte Staffeldt, blaðafulltrúi Dyrenes Beskyttelse. Gitte segir þó að þrátt fyrir að tilkynningum um ofbeldi gegn dýrum fjölgi þýði það ekki endilega að Danir séu að verða ofbeldishneigðari. „Fólk er að verða meðvitaðara. Þegar fólk sér eða heyrir eitthvað þá er það tilkynnt til viðeigandi aðila," segir Gitte í samtali við Berlinske.
Mest lesið Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Erlent Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Erlent „Kannski var þetta prakkarastrik“ Innlent Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum Innlent Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Erlent „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Innlent Fleiri fréttir Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Tuttugu og fimm stúlkna saknað úr sumarbúðum vegna flóða Minnst þrettán látnir og tuttugu barna saknað eftir flóð í Texas Rússar sagðir nota efnavopn í Úkraínu í auknum mæli Sjá meira