Erlent

Fyrrum ráðherra víkur vegna útgjaldahneykslisins

Elliot Morley, fyrrum landbúnaðarráðherra Bretlands, stígur til hliðar vegna útgjaldahneykslisins.
Elliot Morley, fyrrum landbúnaðarráðherra Bretlands, stígur til hliðar vegna útgjaldahneykslisins.
Elliot Morley, fyrrum landbúnaðarráðherra Bretlands, segir að það hafi verið mistök hjá sér að láta breska þingið greiða af húsnæðisláni hans eftir að lánið var að fullu greitt upp. Hann hefur ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri en hann hefur setið á þingi um árabil fyrir Verkamannaflokkinn.

Það gerir hann vegna útgjaldahneykslisins sem hefur skekið breskan þingheim og þjóðlíf í Bretlandi undanfarnar vikur. Breskir fjölmiðlar með Lundúnablaðið Telegraph í broddi fylkingar hafa síðustu vikur birt greinaröð um vafasamar endurgreiðslur til þingamanna úr öllum flokkum á breska þinginu. Þar hefur komið fram að þingmenn hafi sumir teygt reglurnar til hins ýtrasta meðan aðrir þingmenn eru grunaðir um lögbrot. Bresku almenningi hefur blöskrað og mælist traust á stjórnmálamönnum í Bretlandi nú í lægstu lægðum.

Breska þingið greidd samtals 16 þúsund pund, jafnvirði ríflega þriggja milljóna króna, af húsnæðisláni Morleys eftir að lánið var að fullu greitt upp.

Þegar upp komst um málið vék Gordon Brown, forsætisráðherra og formaður Verkamananflokksins, Morley úr þingflokki Verkamannaflokksins meðan rannsakað væri hvort Morley hafi brotið lög.

Morley hefur nú tilkynnt að hann sækist ekki eftir endurkjöri líkt og 13 aðrir þingmenn. Þar á meðal er Michael Martin, forseti neðri málstofu breska þingsins, en hann var gagnrýndur fyrir að hafa ekki hafnað fjölda umsókna um endurgreiðslur eftir að hann tók við sem þingforseti árið 2000. Jafnframt þótti hann hafa tekið illa á málinu eftir að Telegraph hóf að birta upplýsingar um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×