Fyrrum ráðherra víkur vegna útgjaldahneykslisins 29. maí 2009 20:44 Elliot Morley, fyrrum landbúnaðarráðherra Bretlands, stígur til hliðar vegna útgjaldahneykslisins.
Elliot Morley, fyrrum landbúnaðarráðherra Bretlands, segir að það hafi verið mistök hjá sér að láta breska þingið greiða af húsnæðisláni hans eftir að lánið var að fullu greitt upp. Hann hefur ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri en hann hefur setið á þingi um árabil fyrir Verkamannaflokkinn. Það gerir hann vegna útgjaldahneykslisins sem hefur skekið breskan þingheim og þjóðlíf í Bretlandi undanfarnar vikur. Breskir fjölmiðlar með Lundúnablaðið Telegraph í broddi fylkingar hafa síðustu vikur birt greinaröð um vafasamar endurgreiðslur til þingamanna úr öllum flokkum á breska þinginu. Þar hefur komið fram að þingmenn hafi sumir teygt reglurnar til hins ýtrasta meðan aðrir þingmenn eru grunaðir um lögbrot. Bresku almenningi hefur blöskrað og mælist traust á stjórnmálamönnum í Bretlandi nú í lægstu lægðum. Breska þingið greidd samtals 16 þúsund pund, jafnvirði ríflega þriggja milljóna króna, af húsnæðisláni Morleys eftir að lánið var að fullu greitt upp. Þegar upp komst um málið vék Gordon Brown, forsætisráðherra og formaður Verkamananflokksins, Morley úr þingflokki Verkamannaflokksins meðan rannsakað væri hvort Morley hafi brotið lög. Morley hefur nú tilkynnt að hann sækist ekki eftir endurkjöri líkt og 13 aðrir þingmenn. Þar á meðal er Michael Martin, forseti neðri málstofu breska þingsins, en hann var gagnrýndur fyrir að hafa ekki hafnað fjölda umsókna um endurgreiðslur eftir að hann tók við sem þingforseti árið 2000. Jafnframt þótti hann hafa tekið illa á málinu eftir að Telegraph hóf að birta upplýsingar um málið.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira