Vilja stefgjöld fyrir pyntingatónlist í Guantanamo Atli Steinn Guðmundsson skrifar 20. maí 2009 08:48 Fangar í Guantanamo-fangelsinu.
Bandarísk mannréttindasamtök berjast nú gegn því að tónlist sé notuð sem pyntingaraðferð í Guantanamo-fangelsinu. Herferðin gengur undir nafninu núll desibel eða zero db og vísar heitið til hávaðaeiningarinnar desibels. Ætlun samtakanna er að fá tónlistarmennina Bruce Springsteen og Eminem í lið með sér við að vekja athygli á því að fangar Bandaríkjahers í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu hafa verið brotnir niður fyrir yfirheyrslur með háværum tónum hljómsveitanna AC/DC, Aerosmith og Metallica svo eitthvað sé nefnt en sérstaklega þykir þó illkvittni bandarískra leyniþjónustumanna keyra úr hófi fram þegar þeir neyða fanga sína til að hlýða á lagið úr barnaþáttunum Sesame Street. Þá hefur tónlist með sérstaka ameríska skírskotun farið einstaklega illa í hina austurlenskættuðu stríðsfanga og má þar nefna Born in the USA með Springsteen og hinn gamalkunna slagara Don McLean, American Pie. Herferðin hefur vakið verðskuldaða athygli þótt illa hafi gengið að fá tónlistarmenn til þess að taka þátt í henni. Hins vegar hafa sumir tónlistarmenn brugðist ókvæða við er þeim bárust fregnirnar til eyrna en það er þó ekki endilega af vorkunnsemi gagnvart föngunum. Trent Reznor úr hljómsveitinni Nine Inch Nails ætlar til dæmis að stefna bandarísku leyniþjónustunni og krefja hana um stefgjöld fyrir að pína fanga með verkum hans.
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Fleiri fréttir Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Sjá meira