Segir Tiger Woods hafa legið hrjótandi á grasflöt Atli Steinn Guðmundsson skrifar 4. desember 2009 08:04
Nágrannar kylfingsins Tiger Woods segja hann hafa legið hrjótandi á grasflöt þeirra skömmu eftir undarlegan árekstur hans við brunahana og tré í síðustu viku. Þjóðvegalögreglan í Flórída hefur gert opinberar upptökur af yfirheyrslum vitna að hinu furðulega óhappi Tiger Woods við heimili hans fyrir réttri viku þegar hann ók niður brunahana og endaði á tré. Sænsk eiginkona kylfingsins, Elin Nordegren, braut afturrúðu bifreiðarinnar með golfkylfu og var það til að bjarga honum út úr bílnum samkvæmt hennar eigin framburði. Ýmislegt hefur þó komið upp á yfirborðið síðustu daga sem gerir atvikið í meira lagi grunsamlegt og ekki bætir framburður nágranna þeirra hjóna, Jarius Adams, úr skák en hann segist hafa vaknað við skarkala og hlaupið út. Hann hafi þá séð hinn heimskunna golfara liggja kylliflatan og skólausan á grasflötinni og hrjóta. Yfir honum stóð eiginkonan og bað Adams um að aðstoða sig. Hann segir Elínu hafa virst rólega, Tiger hafi verið með sprungna vör en ekki aðra sjáanlega áverka. Í upptökunni, sem CNN hefur undir höndum, hváir lögreglumaðurinn sem annaðist yfirheyrsluna þegar Adams segir Woods hafa hrotið en vitnið situr fast við sinn keip. Woods var fluttur á sjúkrahús skömmu síðar en fljótlega útskrifaður þaðan.
Mest lesið Haft höggbor beint fyrir utan í hálft ár og kominn með nóg Innlent Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Erlent Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Erlent „Brotamenn eru nú ekki oft miklir borgunarmenn“ Innlent POTS-samtök fá lögfræðing í málið: „Margir eru rúmliggjandi í dag“ Innlent Leiðtogafundur í Danmörku: „Rússar munu ekki stoppa fyrr en tilneyddir“ Erlent Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Innlent Hátt spennustig um borð eftir að ísraelski sjóherinn hóf handtökur Innlent Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Innlent Fleiri fréttir Árásin í Manchester skilgreind sem hryðjuverk Leiðtogafundur í Danmörku: „Rússar munu ekki stoppa fyrr en tilneyddir“ Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Afganir fagna því að vera aftur komnir í samband við umheiminn Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Gríðarleg öryggisgæsla í Kaupmannahöfn í aðdraganda leiðtogafundar Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Tala látinna hækkar á Filippseyjum Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ Sjá meira