Erlent

Íbúar Kristjaníu áfrýja til Hæstaréttar

Íbúar í Kristjaníu, fríríkinu svonefnda sem danskir hippar stofnuðu í Kaupmannahöfn fyrir nærri fjórum áratugum, hafa ákveðið að áfrýja dómi dómsstóls frá því dag til Hæstaréttar landsins. Þetta var á ákveðið á fundi íbúanna í kvöld.

Fyrr í dag úrskurðaði danskur dómstóll að íbúunum verði héðan í frá gert að greiða leigu til ríkisins fyrir afnot af Kristjaníu og húsum á svæðinu.

Íbúarnir kærðu stjórnvöld árið 2006 eftir að þau hófu aðgerðir gegn fíkniefnaviðskiptum og kynntu áform um að rífa hús og byggja íbúðarblokkir á svæðinu

Kristjanía verður þannig ekki lengur fríríki heldur verður íbúunum eins og áður sagði gert að greiða leigu fyrir afnot af svæðinu. Íbúarnir töldu sig hafa öðlast eignarrétt á húsum í hverfinu eftir að hafa búið þar í ár og áratugi.




Tengdar fréttir

Íbúum Kristjaníu gert að borga leigu

Íbúar í Kristjaníu, fríríkinu svonefnda sem danskir hippar stofnuðu í Kaupmannahöfn fyrir nærri fjórum áratugum, verður héðan í frá gert að greiða leigu til ríkisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×