Erlent

Íbúum Kristjaníu gert að borga leigu

Íbúar í Kristjaníu, fríríkinu svonefnda sem danskir hippar stofnuðu í Kaupmannahöfn fyrir nærri fjórum áratugum, verður héðan í frá gert að greiða leigu til ríkisins.

Íbúarnir töpuðu í dag málaferli gegn dönskum dómstólum en þeir kærðu stjórnvöld árið 2006 eftir að þau hófu aðgerðir gegn fíkniefnaviðskiptum og kynntu áform um að rífa hús og byggja íbúðarblokkir á svæðinu, þar sem danski sjóherinn hafði áður haft aðstöðu.

Kristjanía er þannig ekki lengur fríríki heldur verður íbúunum eins og áður sagði gert að greiða leigu fyrir afnot af svæðinu. Íbúarnir töldu sig hafa öðlast eignarrétt á húsum í hverfinu eftir að hafa búið þar í ár og áratugi. Talið er líklegt að niðurstöðunni verði vísað til Hæstaréttar Danmerkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×