Erlent

Dregið úr miðstýringu fiskveiða ESB

Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins ákváðu á fundi sínum í gærkvöldi að draga stórlega úr miðstýringu á fiskveiðum bandalagsþjóðanna. Á fundinum viðurkenndu menn að sú stefna hefði mistekist hrapalega með þeim afleiðingum að um 80 prósent af fiskistofnum í lögsögu bandalagsríkjanna væru í hættu vegna ofveiði og brottkasts.

Þess í stað á að stefna að því að viðkomandi ríki og hagsmunahópar, ásamt vísindamönnum þar, stjórni staðbundinni nýtingu á hverju svæði. Verði þetta niðurstaðan gæti það gerbreytt afstöðu Íslendinga til inngöngu í Evrópusambandið, þar sem rök gegn inngöngu eru meðal annars þau að þá myndum við framselja stjórn fiskveiða til Evrópusambandsins. Endurskoðun sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins á að ljúka árið 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×