Erlent

Fangaverðir stóðu aðgerðalausir hjá

„öryggisfangelsið“ Hermenn vakta Cieneguillas-fangelsið.Fréttablaðið/AP
„öryggisfangelsið“ Hermenn vakta Cieneguillas-fangelsið.Fréttablaðið/AP

 Upptökur úr öryggismyndavélum sýna að vopnaðir fangaverðir í meintu öryggisfangelsi í Mexíkó horfðu aðgerðalausir á þegar 53 fangar gengu út og settust óáreittir inn í flóttabíla sem biðu þeirra. Á leiðinni út afgreiddu fangarnir sig meira að segja sjálfir um vopn úr vopnabúri fangavarðanna.

Myndir úr upptökunni voru fyrst birtar í dagblaðinu Reforma í Mexíkóborg á fimmtudag, og í kjölfarið lét ríkissaksóknari birta þær með sínu leyfi.

Myndirnar gefa innsýn í þann mikla vanda sem slakt öryggi í fangelsum Mexíkós veldur, en það hefur meðal annars í för með sér að það hefur lítið upp á sig að saksækja og dæma meðlimi fíkniefnaglæpagengja, sem að loknum dómi ganga óáreittir út um opnar fangelsisdyrnar.

Meðal flóttafanganna 53 voru að minnsta kosti ellefu meðlimir slíkra glæpagengja, sem alþjóðalögreglan Interpol segir í tilkynningu að séu „hættulegir öryggi borgara um víða veröld“.

Meðal flóttabíla fanganna voru lögreglubílar.

Allir starfsmenn fangelsisins, þar á meðal fangelsisstjórinn, hafa verið handteknir meðan á rannsókn fangaflóttans stendur. - aa




Fleiri fréttir

Sjá meira


×