Erlent

Kveikt í myndbandaleigu í Nyborg

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Fimm íbúar við Dronningsvej í Nyborg í Danmörku áttu fótum fjör að launa í nótt þegar kveikt var í myndbandaleigu í húsinu og þeir forðuðu sér út þegar íbúðin tók að fyllast af reyk. Einhver hafði þá brotið rúðu í leigunni, farið inn og kveikt í henni. Húsnæðið er nánast ónýtt og hefur lögreglan ekki enn haft hendur í hári brennuvargsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×