Erlent

Barinn til bana eftir fótboltaleik á Írlandi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Kevin McDaid, sem myrtur var.
Kevin McDaid, sem myrtur var.

Fótboltabullur börðu tæplega fimmtugan mann til bana þegar hann var að leita að sonum sínum eftir fótboltaleik í bænum Coleraine á Norður-Írlandi í gær. Maðurinn óttaðist að synirnir hefðu lent í hópslagsmálum sem voru nýhafin. Sex manns hafa verið handteknir grunaðir um aðild að málinu og útilokar lögreglan ekki að fleiri verði teknir höndum. Hinn myrti var félagsráðgjafi sem starfað hafði náið með lögreglunni að málefnum ungmenna í bænum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×