Ráðstefna um nasistaþýfi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 23. júní 2009 07:27
Rúmlega áttræður gyðingur sem flúði frá Austurríki ásamt fjölskyldu sinni árið 1938 reynir nú að nálgast listmuni sem nasistar stálu frá afa hans. Thomas Selldorff sá sér ekki annað fært en að leggja á flótta þegar nasistar hertu tök sín á Austurríki árið 1938, ári áður en síðari heimsstyrjöldin braust út. Hann komst undan ásamt fjölskyldu sinni en nasistar fóru ránshendi um eigur fjölskyldu hans, þar á meðal rúmlega 200 listaverk sem afi hans hafði safnað um sína daga. Í þessari viku hefst í Prag í Tékklandi ráðstefna þar sem fulltrúar 49 landa og ýmissa alþjóðlegra stofnana koma saman og undirrita samning sem gengur út á að ríkin taki höndum saman við að koma listmunum, sem nasistar stálu, í hendur réttra eigenda, eða erfingja þeirra, á ný. Sérfræðingar telja mörg þúsund listaverk og dýrgripi af ýmsum toga enn á flækingi eftir að þeim var stolið í stríðinu eða árunum fyrir það og nefna þar á meðal nokkur málverk eftir austurrísku málarana Gustav Klimt og Egon Schiele. Meðal þess sem nasistar stálu á kerfisbundinn hátt voru yfir 650.000 list- og trúarmunir í eigu gyðinga. Selldorff og fjölskylda hans, ásamt fjölda annarra, vonast nú eftir að endurheimta megi eitthvað af þessum munum sem margir hverjir voru seldir á svörtum markaði eftir stríð.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira