Verið að skoða starfshætti vegna innheimtu bílalána 31. júlí 2009 04:00 Fjármögnunarfyrirtæki hafa kallað inn fjölda bíla vegna vanskila. Stjórnvöld eru nú með starfshætti slíkrar starfsemi til endurskoðunar. Mynd/GVA
Starfshættir fjármögnunarfyrirtækja eru til skoðunar hjá nefnd þriggja ráðuneyta, félagsmála-, dómsmála- og viðskiptaráðuneytis. Þar er sérstaklega horft til réttarstöðu lántaka gagnvart fyrirtækjunum, en margir hafa kvartað yfir því að hart sé gengið fram í að innheimta bílalán. Gylfi Magnús-son viðskiptaráðherra segir að vinnan sé vel á veg komin og nefndin nái vonandi að skila af sér í ágúst. Hlutverk hennar sé að fara yfir stöðu viðskiptavina og rétt þeirra og hvað sé hægt að gera til að bæta hana. „Það hefur verið mikið um að fólk beri sig illa eftir svona viðskipti, meðal annars vegna bílalána. Til dæmis hefur verið deilt um hvernig á að meta bíla sem teknir eru upp í skuld. Við erum að meta þetta allt saman." Gylfi segir ýmislegt benda til að margt megi betur fara í þessum efnum, en vill þó ekki gefa út yfirlýsingar fyrr en eftir að nefndin hefur lokið störfum. Runólfur Ólafsson, forstjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að möguleikar á skuldbreytingu og lengingu lána, sem fyrirtækin buðu upp á, hafi bætt ástandið. Það séu hins vegar aðeins tímabundin úrræði og nauðsynlegt sé að finna varanlegar lausnir á stöðunni. Runólfur segir að meðal þess sem rætt hafi verið í nefndinni sé að bjóða fólki upp á að breyta lánunum úr erlendri mynt í íslenskar krónur. Ekki séu þó allir hrifnir af þeirri leið, enda hafi gengisvísitalan í sumum tilfellum hækkað um 100 prósent. Eina lausnin í huga margra sé að krónan styrkist þannig að höfuðstóllinn lækki. Hann segist þó telja koma vel til greina að fólk geti valið að breyta lánum úr erlendri mynt í krónur. Runólfur segir mikilvægt að hófs sé gætt þegar samningar eru gerðir upp, en nokkuð hafi vantað þar upp á. Fyrirtækin hafi krafist óeðlilega mikils lögfræðikostnaðar, viðgerðarkostnaður hafi verið óvenjulega hár og matsverð á innkölluðum bílum allt of lágt. Þetta hafi lagast í sumar, en þó séu enn dæmi um þetta. Nú sé lag að breyta þessu, sérstaklega þegar fyrirtækin eru flest komin undir hatt ríkisins. Þá gagnrýnir Runólfur einnig útlánastefnu fyrirtækjanna, en hvatinn þar hafi fyrst og fremst verið að selja fleiri bíla. Oft hafi vantað upp á upplýsingagjöf.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Fleiri fréttir Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Sjá meira