Ný norðurskautsstefna 22. janúar 2009 05:45 Bandaríkin stefna nú að því að gerast aðilar að Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. fréttablaðið/AP
Meðal síðustu embættisverka George W. Bush Bandaríkjaforseta var að móta nýja stefnu Bandaríkjanna gagnvart Norðurheimskautssvæðinu, sem á næstu árum og áratugum verður væntanlega aðgengilegra en áður vegna hlýnunar jarðar. Í stefnunni eru skilgreindir helstu hagsmunir Bandaríkjanna á norðurslóðum, þar á meðal öryggishagsmunir, og Bandaríkjastjórn segist ætla að vinna að því að tryggja þessa hagsmuni, ýmist upp á eigin spýtur eða í samstarfi við önnur ríki sem eiga hagsmuna að gæta í þessum heimshluta. Meðal annars er gert ráð fyrir að Bandaríkin staðfesti loks hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem gerður var árið 1982 og tók gildi árið 1994 þegar 60 ríki, þar á meðal Ísland, höfðu staðfest hann. Talið er fullvíst að miklar auðlindir sé að finna undir hafsbotni Norðurskautsins, bæði olíu, gas og málma, sem Bandaríkin hyggjast gera tilkall til ekki síður en önnur ríki, sem eiga land að Norðurhöfum. Vinna við stefnumótunina hefur staðið yfir í bandaríska stjórnkerfinu í tvö ár, en fimmtán ár eru liðin síðan Bandaríkin gáfu síðast út sambærilega stefnuyfirlýsingu.- gb
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk við Fairford Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira