Erlent

Eins og draugaskip

Óli Tynes skrifar
Ísþoka í Maine í Bandaríkjunum.
Ísþoka í Maine í Bandaríkjunum. MYND/AP

Það hefur verið mikið kuldakast bæði austan hafs og vestan undanfarnar vikur. Það hefur komið þjóðum í Austur-Evrópu mjög illa þar sem Rússar skrúfuðu fyrir gasflutninga sína til Evrópu vegna deilna við Úkraínu.

En kalt veður getur einnig kallað fram dulræna fegurð eins og sjá má á þessari mynd sem var tekin í Maine í Bandaríkjunum. Seglskipið á myndinni er eins og draugaskip vegna ísþokunnar.

Ísþoka myndast þegar kalt loft fer yfir hlýrri sjó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×