Erlent

Flugáhöfn klyfjuð fíkniefnum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Frá Heathrow-flugvelli.
Frá Heathrow-flugvelli.

Fimmtán manns úr áhöfn flugfélagsins South African Airlines voru handteknir á Heathrow-flugvellinum í London í gær eftir að 50 kíló af kannabisefnum og fjögur kíló af kókaíni fundust í farangri þeirra.

Meðal hinna handteknu eru flugmenn vélarinnar sem var að koma frá Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Áhöfnin verður yfirheyrð í dag en breska tollgæslan segir það færast í vöxt að fíkniefnasmyglarar líti til flugáhafna sem vænlegra burðardýra vegna takmarkaðs tolleftirlits með þeim og tíðra ferðalaga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×