Erlent

Samtök gegn fóstureyðingum fordæma ákvörðun Obama

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. MYND/AP

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, aflétti í gærkvöldi takmörkunum á opinberum fjárstuðningin við bandarísk samtök sem veita fjölskylduráðgjöf utan Bandaríkjanna. Það tekur einnig til samtaka sem veita upplýsingar og ráðgjöf um fóstureyðingar. George Bush fyrrverandi forseti hafði komið þeim takmörkunum á.

Hjálparsamtök hafa fagnað ákvörðun forsetans en samtök gegn fóstureyðingum fordæmt hana. Fóstureyðingar hafa verið hitamál í bandarískum stjórnmálum síðan þær voru leyfðar með lögum vegna úrskurðar hæstaréttar 1973.

Gallup könnun frá í fyrra sýnir að fimmtíu og fjögur prósent Bandaríkjamanna vilja leyfa fóstureyðingar undir ákveðnum kringumstæðum, tuttugu og átta prósent vilja leyfa þær alfarið en sautján prósent vilja banna þær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×