Erlent

Vill hýsa hryðjuverkamenn í nafni efnahagsins

Fylkisstjóri Illinois í Bandaríkjunum vonast til þess að geta hýst hryðjuverkamenn sem hingað til hafa dvalið í Guantanamo Bay fangelsinu.

Hann sagði í viðtali við fjölmiðla í dag að með nýju hámarksöryggisfangelsi í fylkinu væri hægt að skapa allt að 2000 störf og skapa tekjur upp á einn milljarð dollara.

Barack Obama hefur áður sagt að hann vilji loka hryðjuverkabúðunum alræmdu og hýsa fangana í hámarks öryggisfangelsum í Bandaríkjunum. Nú sjá fylki gróðavon í áætlun Obama og hafa lagst á sveif með honum í þessu gríðarlega umdeilda máli.

„Þetta gæti orðið gríðarlega gott fyrir ríkið og efnahaginn auk þess sem þetta er gott fyrir almannaöryggi," segir Pat Quinn, fylkisstjóri Illinois.

Fangelsið sem um ræðir heitir Thomson Correctional Center. Forsvarsmenn varnamálaráðuneytis Bandaríkjanna auk fleiri embætta munu kanna aðstæður í fangelsinu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×