Kröfu móður Jacksons hafnað 7. júlí 2009 12:12
Dómari í Los Angeles hafnaði í gær kröfu Katherine Jackson, móður poppsöngvarans, um að hún yrði gerð að fjárhaldsmanni í dánarbúi Jackson. Þess í stað skipaði dómarinn lögfræðinginn John Branca og tónlistarútgefandann John McClain fjárhaldsmenn dánarbúsins. Í erfðaskrá söngvarans frá árinu 2002 kemur fram sú ósk hans að Branca og McCain meðhöndli eignir hans falli hann frá. Við dómsúrskurðinn í gær kom fram að eignir dánarbúsins væru metnar á 500 milljón dollara. Það eru um 64 milljarðar króna. Enn er mörgum spurningum ósvarað varðandi dauða Jackson. Einkaþjálfari hans segir að áhyggjur og streita vegna mörg hundruð milljóna dollara skuldabagga hafi dregið hann til dauða. Hann vísar því á bug að söngvarinn hafi verið illa á sig kominn vegna lyfjaneyslu. Þvert á móti hafi Jackson verið í toppformi fyrir væntanlegt tónleikaferðalag. Útför Jackson fer fram í kyrrþey snemma í dag að bandarískum tíma. Þá verður opinber minningarathöfn um Michael Jackson haldin í Los Angeles í dag. Meðal þeirra söngvara sem munu heiðra minningu poppgoðsins eru Stevie Wonder, Lionel Richie og Mariah Carey. Minningarathöfnin verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Extra klukkan fimm í dag. Búist er við að yfir þrír milljarðar áhorfenda um allan heim muni sameinast fyrir framan sjónvarpið.
Tengdar fréttir Jackson lagður til hinstu hvílu Stevie Wonder, Lionel Richie og Mariah Carey verða meðal þeirra söngvara sem heiðra minningu poppgoðsins Michaels Jackson við minningarathöfn sem haldin verður um hann í dag í Staples Center í Los Angeles. 7. júlí 2009 07:33 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira
Jackson lagður til hinstu hvílu Stevie Wonder, Lionel Richie og Mariah Carey verða meðal þeirra söngvara sem heiðra minningu poppgoðsins Michaels Jackson við minningarathöfn sem haldin verður um hann í dag í Staples Center í Los Angeles. 7. júlí 2009 07:33