Erlent

Sex ára stúlka lést í London af völdum svínaflensunnar

Gunnar Örn Jónsson skrifar
Sex ára stúlka í Bretlandi lést úr svínaflensunni síðastliðinn fimmtudag. Þetta er aðeins í annað skiptið sem einstaklingur lætur lífið af völdum flensunnar, sem á ekki við nein undirliggjandi heilsuvandamál að stríða. Alls hafa nú sautján manns látið lífið af völdum flensunnar í Bretlandi en hinir fimmtán áttu við einhvers konar heilsuvandamál að etja.

Verið er að rannsaka hvort stúlkan hafi verið fullkomlega heilsuhraust en ekki er vitað til annars en svo hafi verið. Stúlkan, sem var frá Norðvesturhluta Lundúna, veiktist í Bretlandi.

Um það bil tíu þúsund svínaflensusmit hafa verið staðfest í Bretlandi en hundruðir þúsunda eru taldir hafa sýkst af flensunni. Heildarfjöldi smitaðra í Bretlandi er nú orðinn það mikill að tilfellin eru nú áætluð frekar en að hvert tilfelli fyrir sig sé talið.

Aðeins í Bandaríkjunum og Mexíkó hafa fleiri greinst með svínaflensuna. Fjöldi smitaðra í Bandaríkjunum er rétt tæplega 34 þúsund og rúmlega 10 þúsund manns hafa smitast í Mexíkó. Sky fréttaveitan greinir frá þessu í dag.

Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld, býst Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir, við því að um helmingur íslensku þjóðarinnar muni smitast af svínaflensunni.






Tengdar fréttir

Talið að helmingur þjóðarinnar muni smitast af svínaflensu

Sóttvarnalæknir býst við að annar hver Íslendingur veikist af inflúensu H1N1 eða svínaflensu í vetur. Bretar og Norðmenn munu bjóða öllum þegnum landanna bólusetningu, en hér verður aðeins til bóluefni fyrir helming íslensku þjóðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×