Erlent

Interpol setur saman lista yfir áhrifamestu glæpamenn heims

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Osama bin Laden er talinn bera ábyrgð á hryðjuverkunum 11. september 2001.
Osama bin Laden er talinn bera ábyrgð á hryðjuverkunum 11. september 2001.
Alþjóðalögreglan, Interpol, hefur sett saman lista yfir áhrifamestu glæpamenn í heimi fyrir Forbes tímaritið. Osama bin Laden er án efa sá mest áberandi á listanum en jafnframt eru á honum tveir nánir samverkamenn hans. Listinn er eftirfarandi:





  1. Osama bin Laden, stofnandi al-Qaida, er talinn bera ábyrgð á hryðjuverkunum 11. september.
  2. Ratko Mladic var yfirmaður hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu á tíunda áratug síðustu aldar.
  3. Dawood Ibrahim Kaskar er leiðtogi D-Company, glæpasamtakanna í Mumbaí. Kaskar er talinn vera náinn samverkamaður bin Landens.
  4. Mullah Omar, leiðtogi Talibana í Afganistan, er talinn hafa veitt bin Laden skjól í aðdraganda og árin eftir hryðjuverkaárásirnar þann 11. september 2001.
  5. Félicien Kabuga er talinn bera ábyrgð á þjóðarmorðunum í Rúanda á tíunda áratug síðustu aldar þar sem hundruð þúsunda voru teknar af lífi.
  6. Joaquin Guzman, leiðtogi Sinaloa hringsins, er talinn vera einn mesti eiturlyfjabarón í heimi.
  7. Joseph Kony, leiðtogi Lord Resistance Army, sem er hryðjuverkahópur frá Úganda. Hópurinn hefur verið starfandi í 22 ár og barist gegn stjórnvöldum í Úganda.
Ronald K. Noble, framkvæmdastjóri Interpol, segir í umsögn sinni um listann að erfitt sé að raða á lista helstu glæpamönnum heims. Matið sé huglægt og ef til vill sé með slíkum lista verið að hefja verk glæpamannanna til vegsemdar. Það sé að sjálfsögðu ekki tilgangur lögreglumanna.

Noble bendir hins vegar að glæpir og glæpamenn séu ekki allir alveg eins. Ákveðin nöfn séu eftirminnilegri en önnur vegna fjölda þolenda, alvarleika glæpanna og hversu mikla fjölmiðlaumfjöllun glæpirnir hafi hlotið.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×