Erlent

„Ofurfangelsi“ í Colorado tekur hugsanlega við af Guantanamo

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Það ber svo sem ekkert mikið á Florence-fangelsinu sem heitir réttu nafni „The United States Penitentiary Administrative Maximum Facility“ eða ADX Florence. Sú romsa ein og sér gefur töluvert til kynna um stofnunina.
Það ber svo sem ekkert mikið á Florence-fangelsinu sem heitir réttu nafni „The United States Penitentiary Administrative Maximum Facility“ eða ADX Florence. Sú romsa ein og sér gefur töluvert til kynna um stofnunina. MYND/Reuters

Öryggisfangelsið í Florence í Colorado gæti orðið næsta prísund þeirra fanga sem nú dvelja í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu.

Florence-fangelsið er ekki skírt í höfuðið á Florence Nightingale, hafi einhverjum dottið það í hug, en er hins vegar gjarnan kallað Alcatraz Klettafjallanna og er eina ofuröryggisfangelsið í Bandaríkjunum. Íbúarnir eru heldur ekki einhverjir sem þú myndir rekast á í Bónus eða 10 - 11.

Þarna eru geymdir menn á borð við stærðfræðinginn Theodore Kaczynski, sem myrti og slasaði tugi háskólanema með bréfasprengjum og gengur undir því huggulega viðurnefni Unabomber, Ramzi Yousef, sem sprengdi öfluga sprengju í World Trade Center árið 1993, og Zacarias Moussaoui sem hefði flogið fimmtu flugvélinni á Hvíta húsið 11. september hefði hann ekki verið handtekinn í flugskólanum nokkrum vikum áður.

Enginn hefur nokkru sinni flúið úr fangelsinu og reyndar ekki vitað til þess að nokkur hafi reynt það. Fangarnir hittast aldrei og hafa ekkert samneyti sín á milli. Það er beinlínis horft á þá allan sólarhringinn og þeir fara ekki úr klefum sínum, sem eru um það bil tvisvar sinnum fjórir metrar að flatarmáli, nema einu sinni á sólarhring og þá í eina klukkustund til að stunda líkamsrækt.

Íbúar Florence City eru meira en tilbúnir að taka við föngum frá Guantanamo. „Fangelsið er kreppufrítt og þetta er ekki iðnaður sem mengar," segja þeir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×