„Ofurfangelsi“ í Colorado tekur hugsanlega við af Guantanamo Atli Steinn Guðmundsson skrifar 29. maí 2009 08:11 Það ber svo sem ekkert mikið á Florence-fangelsinu sem heitir réttu nafni „The United States Penitentiary Administrative Maximum Facility“ eða ADX Florence. Sú romsa ein og sér gefur töluvert til kynna um stofnunina. MYND/Reuters
Öryggisfangelsið í Florence í Colorado gæti orðið næsta prísund þeirra fanga sem nú dvelja í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu. Florence-fangelsið er ekki skírt í höfuðið á Florence Nightingale, hafi einhverjum dottið það í hug, en er hins vegar gjarnan kallað Alcatraz Klettafjallanna og er eina ofuröryggisfangelsið í Bandaríkjunum. Íbúarnir eru heldur ekki einhverjir sem þú myndir rekast á í Bónus eða 10 - 11. Þarna eru geymdir menn á borð við stærðfræðinginn Theodore Kaczynski, sem myrti og slasaði tugi háskólanema með bréfasprengjum og gengur undir því huggulega viðurnefni Unabomber, Ramzi Yousef, sem sprengdi öfluga sprengju í World Trade Center árið 1993, og Zacarias Moussaoui sem hefði flogið fimmtu flugvélinni á Hvíta húsið 11. september hefði hann ekki verið handtekinn í flugskólanum nokkrum vikum áður. Enginn hefur nokkru sinni flúið úr fangelsinu og reyndar ekki vitað til þess að nokkur hafi reynt það. Fangarnir hittast aldrei og hafa ekkert samneyti sín á milli. Það er beinlínis horft á þá allan sólarhringinn og þeir fara ekki úr klefum sínum, sem eru um það bil tvisvar sinnum fjórir metrar að flatarmáli, nema einu sinni á sólarhring og þá í eina klukkustund til að stunda líkamsrækt. Íbúar Florence City eru meira en tilbúnir að taka við föngum frá Guantanamo. „Fangelsið er kreppufrítt og þetta er ekki iðnaður sem mengar," segja þeir.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Fleiri fréttir Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Sjá meira