Erlent

Öryggisgæsla Bretadrottningar brást

Óli Tynes skrifar

Talsmaður bresku konungsfjölskyldunnar segir að verið sé að rannsaka fréttir þess efnis að blaðamönnum frá slúðurblaðinu News of The World hafi tekist að komast inn í íbúð Elísabetar drottningar í Lundúnum.

Þeim hafi einnig tekist að setjast upp í bíl hennar eftir að hafa mútað bílstjóranum.

Blaðamennirnir dulbjuggu sig sem kaupsýslumenn frá Miðausturlöndum. Þeir borguðu bílstjóranum eittþúsund sterlingspund fyrir að komast framhjá öryggisgæslu konungsfjölskyldunnar.

Blaðið segir í forsíðufrétt um þetta mál að blaðamenn þess hafi verið að kanna öryggisgæsluna sem ekki þótti upp á marga fiska. Blaðamenn þess hefðu allt eins getað verið útsendarar Al Kaida.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×