Erlent

Sprengdu upp hurð á fangelsisgarði

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Lögregla á vettvangi við Moulins-fangelsið.
Lögregla á vettvangi við Moulins-fangelsið. MYND/AFP

Tveir fangar í Moulins-fangelsinu í Mið-Frakklandi sprengdu upp hurð á fangelsisgarðinum með sprengiefni síðdegis í gær, tóku tvo fangaverði í gíslingu og komust undan á bifreið.

Lögregla leitar strokufanganna á stóru svæði en vitað er að þeir eru vopnaðir að minnsta kosti einni skammbyssu. Gíslunum var sleppt úr haldi nálægt París og eru þeir ómeiddir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×