Erlent

Gagnrýnir páfa fyrir að létta banni af Williamson

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Sadiq Khan.
Sadiq Khan. MYND/Sadiqkhan.org.uk

Breski þingmaðurinn Sadiq Khan gagnrýnir Benedikt páfa sextánda harðlega fyrir að létta bannfæringu af biskupnum Richard Williamson í síðustu viku.

Williamson hefur lýst því yfir opinberlega, síðast í sænsku sjónvarpi, að helför gyðinga hafi aldrei átt sér stað og útilokað sé að sex milljónir þeirra hafi látið lífið í gasklefum. Khan sagðist hafa verulegar áhyggjur af því að einhver, sem afneitaði helförinni, gæti gegnt biskupsembætti og tekið þátt í athöfnum kaþólsku kirkjunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×