Erlent

Bíða eftir ákvörðun Obama

Karl-Theodor zu Guttenberg, varnarmálaráðherra Þýskalands.
Karl-Theodor zu Guttenberg, varnarmálaráðherra Þýskalands. Mynd/AP
Karl-Theodor zu Guttenberg, varnarmálaráðherra Þýskalands, segir að þýsk stjórnvöld bíði nú eftir því að Barack Obama, Bandaríkjaforseti, greini frá því hvort Bandaríkjamenn ætli að fjölga í herliði sínu Afganistan.

Þýska ríkisstjórnin samþykkti í gær að framlengja veru þýskra hermanna Afganistan um eitt ár en Guttenberg segir að ákvörðun um að fjölga hermönnum í landinu verði ekki tekin fyrr en ný hernaðaráætlun liggi fyrir. Því sé beðið eftir yfirlýsingu Obama en hann sagði í gær að afar stutt væri í að hann greini frá fyrirætlan sinni.

Meira en 4000 þýskir hermenn eru í Afganistan.

Guttenberg fundaði með Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×