Erlent

Von um samkomulag á Madagaskar

Marc Ravalomanana
Marc Ravalomanana

Samkomulag er talið vera í uppsiglingu sem á að leysa stjórnmálakreppuna sem hefur verið á Madagaskar upp á síðkastið. Sérstakur sendifulltrúi Sameinuðu þjóðana segir við BBC að núverandi stjórnmálaflokkar í landinu hafi komist að samkomulagi um tímabundna stjórn og drög að enandanlegu samkomulagi.

Hann segir einnig að bæði Marc Ravalomanana forseti og Andry Rajoelina, sem tók við völdum með hjálp hersins í mars, gætu tekið þátt í komandi kosningum.

Á síðustu mánuðum hafa yfir hundrað manns látist vegna óeirða í landinu. Ravolamana hefur verið í útlegð í suður afríku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×