Erlent

Raðmorðingi tekinn af lífi í nótt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
John Allen Muhammad verður að öllum líkindum tekinn af lífi í nótt. Mynd/ AFP.
John Allen Muhammad verður að öllum líkindum tekinn af lífi í nótt. Mynd/ AFP.
Maðurinn sem myrti ellefu manns í og við Washington DC, höfuðborg Bandaríkjanna, árið 2002 verður tekinn af lífi í nótt. Dómari hafnaði ósk um að mál hans yrði tekið fyrir að nýju.

Verjendur John Allen Muhammad segja að hann sé ekki heill á geði en Tim Kaine, dómari í Virginíu, fellst ekki á rök þeirra.

Muhammand, sem er 48 ára gamall, mun fá banvæna sprautu í nótt. Lee Boyd Malvo, vitorðsmaður Muhammads, var dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hann var 17 ára gamall þegar morðin áttu sér stað.

BBC greindi frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×