FBI hafði hendur í hári Allen Stanford 19. febrúar 2009 21:54 Allen Stanford
Bandaríska Alríkislögreglan (FBI) fann í kvöld milljarðamæringinn Allen Stanford í Virginíu í Bandaríkjunum. Stanfords hefur verið leitað vegna meintra fjársvika og peningaþvættis. Það var talsmaður Alríkislögreglunnar sem tilkynnti þetta fyrir stundu. Richard Kolko talsmaður Alríkislögreglunnar sagði hinsvegar að Stanford hefði ekki verið handtekinn en hann var spurður út í fjársvikin sem talin eru vera upp á allt að 8 milljarða dollara. Fjármálaeftirlitið bandaríska hefur lagt fram kæru á hendur Stanford og tveimur samstarfsmönnum hans vegna fjársvikana. FBI rannsakar einnig hvort Stanford hafi tekið þátt í að þvætta eiturlyfjagróða. Yfirvöld gerðu áhlaup á skrifstofur Stanfords á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum í vikunni og þar var lagt hald á tölvur og gögn. Hann flúði undan lögreglu og var týndur í nokkra daga. Íbúar í Ekvador, Kólumbíu, Mexíkó, Perú, Venesúaela og á karíbaeyjunni Antígva eru uggandi enda veldi Stanfords töluvert á þessum stöðum. Þar hefur hann komið að stofnun banka og ýmissa fyrirtækja. Áhlaup hafa verið gerð á banka sem tengjast honum af ótta við að fé verði fryst eða gufi upp. Yfirvöld í löndunum hafa heitið því að tryggja innistæður. Viðskipti með bréf í félögum Stanfords hafa verið stöðvuð í kauphöllunum í Kólumbíu og Ekvador. Áfallið verður að mati sérfræðinga hlutfallslega mest á Antígva þar sem sextíu og níu þúsund manns búa. Eyjan er tæpir þrjú hundruð ferkílómetrar að stærð. Stanford á og rekur fjölda fyrirtækja þar og er stærsti vinnuveitandinn í einkageiranum á Antígva. Baldwin Spencer, forsætisráðherra, sagði málið geta leitt miklar hörmungar yfir eyríkið en hvatti um leið íbúa til að sýna stillingu.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira