Tugir hafa brunnið lifandi í kjarreldunum 8. febrúar 2009 18:43
Tugir manna hafa brunnið lifandi í bílum sínum þegar þeir reyndu að flýja kjarreldana í Ástralíu. Um eitthundrað manns hafa farist um helgina og heilu þorpin hafa fuðrað upp á nokkrum mínútum. Fjallháir kjarreldarnir hafa orðið um eitthundrað manns að bana í Viktoríuhéraði í Suður-Ástralíu um helgina. Lofthitinn hefur verið um 48 gráður á Celsíus. Stífir vindar hafa búið til hreina eldstorma sem hafa farið svo hratt yfir að fólk hefur ekki haft ráðrúm til þess að flýja. Á götum í brunarústum bæjanna má sjá flök af bílum sem lentu í hörðum árekstrum þegar fólkið reyndi í örvæntingu að flýja eldvegginn. Reykurinn var þá orðinn svo svartur að það sá ekki út úr augum. Því urðu árekstrar og fólkið brann í óökufærum bílunum. Meðal bæja sem brunnu var Marysville. Judy Jans var ein af heppnari íbúum bæjarins. Hún lifði. Þúsundir slökkviliðsmanna og sjálfboðaliða börðust við kjarrelda á einum fjörutíu stöðum þegar verst var. Við fyrstu sýn er talið að um eittþúsund íbúðarhús hafi brunnið til kaldra kola. Búist er við að sú tala muni hækka verulega áður en upp verður staðið. Sem og tala látinna. Slökkviliðsmenn eru að tína upp lík hvar sem þeir fara. Auk þeirra sem hafa farist eru margir stórslasaðir af brunasárum. Kjarreldar eru ekki óalgengir í Ástralíu á þessum árstíma, en nú er þar sumar með tilheyrandi hitum og þurrki. Þessir eru þó þeir verstu í manna minnum.
Mest lesið Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Selenskí mun funda með Trump Erlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fleiri fréttir Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Sjá meira