Vilja refsiaðgerðir fyrir skattaskjólin 23. febrúar 2009 03:00 Angela Merkel þýskalandskanslari ræddi regluverk í kringum fjármálastarfsemi í Evrópu við aðra leiðtoga Evrópuríkja, þar á meðal Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands (til vinstri) í Berlín í gær. Nordicphotos/afp
Herða þarf reglur og eftirlit með fjármálakerfi heimsins, þar með talið vogunarsjóðum, og með þeim fjárfestum sem þar starfa, að mati leiðtoga nokkurra helstu Evrópuríkja, sem funduðu í Berlín í gær. Í yfirlýsingu sem gefin var út að loknum fundi leiðtoga Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu, Lúxemborgar, Spánar, Hollands og Tékklands kemur fram að leiðtogarnir hafi náð saman um sjö lykilatriði til að stuðla að stöðugra fjármálakerfi. „Við þurfum að senda skýr skilaboð og grípa til afgerandi aðgerða til að efla á ný traust á fjármálamörkuðum og leiða heiminn í átt til vaxtar og aukinna atvinnutækifæra,“ sagði Angela Merkel Þýskalandskanslari að fundi loknum. Ekki verður upplýst um smáatriði samkomulagsins fyrr en það hefur verið kynnt leiðtogum annarra Evrópusambandsríkja. Þar kom þó fram vilji leiðtoganna til að skylda banka til að eiga stærri varasjóði til að bregðast við erfiðum aðstæðum. Eftir fundinn kom fram í máli Merkel að leiðtogarnir vildu styrkja Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, og væru sammála um að ríki heims þyrftu að tvöfalda framlög sín til sjóðsins. Full þörf væri á því til að hann gæti hjálpað ríkjum heims þegar þau lentu í fjárhagslegum erfiðleikum. „Nýtt regluverk væri merkingarlaust ef það felur ekki í sér refsiaðgerðir gegn skattaparadísum,“ sagði Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, að fundi loknum. Hann sagði Evrópulönd nú vinna að lista yfir þekkt skattaskjól. Þá sé unnið að undirbúningi refsiaðgerða sem kunni að verða beitt gegn þeim haldi þau áfram að stunda það sem hann kallaði ábyrgðarlausa fjármálastarfsemi. Þau atriði sem samkomulag var um á fundinum í gær verða grunnur að viðræðum leiðtoga 20 stærstu hagkerfa heims, G20, í London í byrjun apríl. Reiknað er með því að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sitji fundinn í London. Bandaríkin og Bretland beittu sér gegn Merkel þegar hún vildi efla regluverk á fjármálamarkaði fyrir tveimur árum. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira