Líklegt að ræningjarnir í Svíþjóð hafi hlotið herþjálfun 23. september 2009 12:33
Sænska lögreglan telur að þyrluflugmaðurinn sem tók þátt í að ræna peningageymslu öryggisfyrirtækis í morgun hafi hlotið herþjálfun. Þá leikur einnig grunur á að einn ræningjanna sé starfsmaður öryggisfyrirtækisins. Ræningjarnir lentu þyrlunni á þaki öryggisfyrirtækisins og sprengdu sér leið inn í húsið. Næturverðir gerðu lögreglu viðvart og voru þjófarnir enn í byggingunni þegar hún kom á staðinn en þeir flugu á brott með ránsfenginn áður en lögreglan náði að komast upp á þakið. Þyrlan fannst mannlaus norðan við Stokkhólm nokkru eftir ránið. Það virðist hafa verið þaulskipulagt en skemmdarverk voru unnin á þyrlum lögreglunnar sem fyrir vikið komust hvorki lönd né strönd. Sænska lögreglan telur að einn eða fleiri mannanna hafi hlotið herþjálfun þar sem þyrluflugmaðurinn hefur þurft að búa yfir talsverðri færni. Flugmaðurinn lenti þyrlunni mjög nálægt 12 metra háum birkitrjám. Þyrluspaðarnir voru aðeins nokkra metra frá þeim. Sænska lögreglan reynir nú að kortleggja hverjir búa yfir slíkri færni. Þá leikur einnig grunur á að meðal þjófanna sé starfsmaður öryggisfyrirtækisins. Enn hefur ekki komið fram hversu stór ránsfengurinn var en lögreglan telur að hann hafi verið í kringum 1 milljarð sænskra króna eða 18 milljarðar íslenskra króna.
Mest lesið Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Segist saklaus Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Innlent Óvissustig í Súðavíkurhlíð Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Innlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Sjá meira