Erlent

Lögregla á Jótlandi gengur hreint til verks

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Tveir ræningjar í Norðborg á Jótlandi nutu frelsisins ekki nema í níu mínútur eftir að þeir höfðu rænt þrjá erlenda ferðamenn peningum og greiðslukortum úti á götu. Lögreglu bárust nánast strax vísbendingar um ferðir mannanna sem nægðu til að finna þá og handsama. Þeir voru leiddir fyrir dómara sem úrskurðaði þá í fjögurra vikna gæsluvarðhald og komnir inn í klefa innan við klukkustund eftir afbrotið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×