Þingkosningar í Ísrael í dag Guðjón Helgason skrifar 10. febrúar 2009 13:04
Þingkosningar eru í Ísrael í dag. Búist er við að kjósendur halli sér til hægri og velji hauka til að stjórna landinu. Útlit er fyrir að Binyamin Netanyahu, leiðtogi Líkúd bandalagsins, verði nýr forsætisráðherra. Um snemmbúnar kosningar er að ræða. Ehud Olmert, fráfarandi forsætisráðherra, tilkynnti fyrir nokkru að hann ætlaði að víkjaúr embætti og hætta sem leiðtogi Kadima flokksins vegna ásakana um spillingu. Ekki tókst að mynda nýja stjórn og því var boðað til kosninga. Síðustu vikurnar hafa kannanir bent til þess að Binyamin Netanyahu, leiðtogi hægrisinnaða stjórnarandstöðuflokksins Líkúd-bandalagsins, verði næsti forsætisráðherra. Netanyahu var forsætsiráðherra á árunum 1996 til 1999. Eitthvað hefur þó stjórnarflokkunum tekist að saxa á forskotið síðustu daga og kemur Tzipi Livni, utanríkisráðherra og nýr leiðtogi Kadima-flokksins, fast á hæla Netanyhus. Kjörstaðir voru opnaðir klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma og verður lokað klukkan átta. Ísraelar lokuðu Vesturbakkanum í dag vegna kosninganna og banna Palestínumönnum að koma til Ísraels. Kannanir benda til þess að kjörsókn gæti orðið slök. Tuttugu prósent kjósenda vissu ekki hverja þeir vildu kjósa og töldu alla kosti vonda.
Mest lesið Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Fleiri fréttir Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Sjá meira