Erlent

Lendingin á Hudson fljóti

Óli Tynes skrifar

Bandaríska strandgæslan hefur sent frá sér myndir af augnablikinu þegar farþegaþotan nauðlenti á Hudson fljóti í fyrradag.

Einnig sjást myndir af því þegar neyðarútgangar eru opnaðir og farþegarnir forða sér út á vængina.

Þar byrja þeir í samvinnu við áhöfnina að blása upp björgunarbáta. Ferjur og aðrar fleytur streyma að flugvélinni á fullri ferð og byrja að bjarga fólkinu um borð.

Þessar myndir verða sýndar í fréttatíma Stöðvar 2 klukkan hálf sjö.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×