Íranar vilja breytingar á samningnum 28. október 2009 04:00 Fulltrúar frá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni hófu að rannsaka kjarnorkuverið Fordo í Íran á sunnudaginn var. Mikil leynd hefur hvílt yfir kjarnorkuverinu en það er falið inni í fjalli. Íranar hafa alla tíð haldið því fram að kjarnorkuframleiðsla þeirra sé einungis í friðsamlegum tilgangi. nordicphotos/afp
Íranar eru reiðubúnir að ganga til samninga við Sameinuðu þjóðirnar um kjarnorkueftirlit, en þó aðeins ef veigamiklar breytingar verða gerðar á þeim samningi sem nú liggur fyrir. Þetta hefur íraska fréttastofa Al Alam-sjónvarpsins eftir heimildarmönnum sínum og segir að stjórnvöld í Íran muni gefa Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni svar innan tveggja sólarhringa. Samkvæmt samningsdrögunum munu Íranar senda auðgað úran til Rússlands og Frakklands þar sem efninu verður breytt í kjarnorkueldsneyti. Íranar áttu að svara á föstudaginn var. Manoucheher Mottaki, utanríkisráðherra Írans, sagði á mánudag að stjórnvöld þar í landi væru að íhuga að verða sér úti um auðgað úran í öðrum löndum. Vesturveldin telja sig vera að koma til móts við Írana með því að gefa þeim möguleika á að fá það kjarnorkueldsneyti sem þeir þurfa en um leið verði tryggt að Íranar noti ekki auðgað úran í kjarnavopn. Bernand Kouchner, utanríkismálaráðherra Frakklands, sagði að Írönum hefði verið sýnd mikil þolinmæði og sakaði írönsk stjórnvöld um tímaeyðslu. Samkvæmt heimildum bresku fréttastofunnar BBC gætir vaxandi andstöðu við samninginn hjá Írönum og er óttast að ef samningurinn verði ekki samþykktur muni það setja frekari samningaviðræður í uppnám. - kh
Mest lesið Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Innlent Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Erlent Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Innlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Erlent Fleiri fréttir Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Sjá meira