Enski boltinn

Kyrgiakos að ganga í raðir Liverpool

Ómar Þorgeirsson skrifar
Sotiris Kyrgiakos.
Sotiris Kyrgiakos. Nordic photos/Getty

Flest virðist nú benda til þess að gríski landsliðsvarnarmaðurinn Sotiris Kyrgiakos verði kynntur sem nýr leikmaður Liverpool en leikmaðurinn tilkynnti sjálfur á heimasíðu sinni í mánudagskvöld að hann væri með samningstilboð í höndunum frá Liverpool sem hann væri búinn að samþykkja.

Tvennum sögum fer reyndar af því hvort að AEK frá Aþenu sé búið að samþykkja kauptilboð Liverpool í hinn 30 ára varnarmann en enska félagið er talið þurfa að borga 1,5-2,5 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Ef af kaupunum verður getur knattspyrnustjórinn Rafa Benitez hjá Liverpool andað léttar en hann hefur ekki farið leynt með að hann sé á eftir nýjum varnarmanni til þess að fylla skarð Sami Hyypia sem yfirgaf Anfield í sumar. Kyrgiakos er þá væntanlega hugsaður sem varaskeifa fyrir Jamie Carragher, Martin Skrtel og Daniel Agger.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×